flugfréttir
Boeing með mun fleiri pantanir en Airbus það sem af er ári
Frá verksmiðjum Airbus í Toulouse
Boeing virðist hafa ágætis forskot á Airbus er kemur að þeim fjölda pantana í nýjar farþegarþotur sem flugvélaframleiðendurnir tveir hafa fengið á fyrstu fjórum mánuðum ársins.
Airbus hefur fengið pantanir í 51 farþegaþotu það sem af er þessu ári en á sama tíma
hefur Boeing fengið pantanir í 241 þotu.
Airbus byrjar nýtt ár yfirleitt frekar rólega er kemur að pöntunum þar sem framleiðandinn
kýs að bíða með yfirlýsingar og uppfærslu á pöntunarlista fram á sumar þegar flugsýningin
í París fer fram og má vænta þess að þá verði tilkynnt um fjölda nýrra pantanna í júní.
Þrátt fyrir það þá sýna sölutölur Airbus, sem birtar voru í gær, að eftirspurnin eftir nýjum
þotum er minni en verið hefur undanfarið ár.
Airbus segir að í ár séu komnar pantanir í 23 nýjar þotur ef tekið er með í reikninginn
þær pantanir sem hefur verið hætt við og breytingar á pöntunum.
Boeing hefur fengið pantanir í 210 þotu þegar búið er að reikna breytingar og þær
vélar sem hætt hefur verið við.
Airbus stefnir á að afhenda um 700 nýjar flugvélar á þessu ári en Boeing stefnir á að afhenda
allt að 765 nýjar þotur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.