flugfréttir

Sully flaug með F-16 þotu Thunderbirds-sveitarinnar

6. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:19

Chesley „Sully“ Sullenberger þáði strax boðið um að fljúga með F-16 er Thunderbirds-sveitin hafði samband við hann

Hinn frægi flugstjóri, Chesley „Sully“ Sullenberger, nýtti sér tækifærið sl. fimmtudag og fékk að fljúga með F-16 orrustuþotu í tengslum við flugsýningu á vegum Thunderbirds listflugssveitarinnar sem fram fer um helgina í Kaliforníu.

Thunderbirds er ein af listflugssveitum bandaríska flughersins þar sem þrautreyndir orrustuflugmenn sýna listir sýnar og færni en sveitin mun halda næstum vikulegar sýningar víðsvegar um Bandaríkin fram til nóvember og þá er bókaðar 38 flugsýningar árið 2018.

Flug Sully með F-16 var liður í auglýsa listflugssýninguna sem fram fer á Travis Air Force Base herflugvellinum skammt norðaustur af San Francisco.

„Loksins fæ ég að fljúga F-16… hverjum hefði dottið það í hug?“, sagði Sully í viðtali við Fox sjónvarpsstöðina en Sully flaug F-4 Phantom orrustuþotu bandaríska flugherisns í Víetnamstríðinu.

Átti ekki von á því að fá að fljúga með F-16

„Það er mjög gefandi og alveg ótrúlegt að sjá hversu færir þeir eru og það er mjög gaman að vera mjög góður í að gera eitthvað sem er erfitt að gera vel. Og að horfa á þá og hversu nákvæmir þeir er alveg magnað“, sagði Sully um flugmennina eftir að hafa flogið með F-16.

Sully eftir flugið með F-16 orrustuþotunni

Sully átti aldrei von á því að hann fengi tækifæri á að fljúga með F-16 en þegar Thunderbirds bað hann um að kynna sýninguna um helgina þá gat hann ekki neitað því boði.

„Ég var 5 ára þegar ég vissi nákvæmlega hvað ég vildi gera í lífinu og ég hef verið það lánsamur að eyða ævinni í að gera það sem ég elska. Þegar þú færð slíkt tækifæri þá gerist það ekki betra en það“, segir Sully.

Sullenberger, sem er 66 ára, er þekktastur fyrir afrek sitt er hann nauðlenti farþegaþotu frá US Airways á Hudson-fljótinu árið 2009 eftir að vélin missti afl á báðum hreyflum eftir að hafa flogið gegnum hóp gæsa skömmu eftir flugtak frá LaGuardia-flugvellinum.

Sully lét af störfum hjá US Airways árið 2010 eftir að hafa verið atvinnuflugmaður í 30 ár.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga