flugfréttir
Flugstjóri lagði sig í tvo og hálfan tíma á Business Class
- Flugmaður í þjálfunarferli flaug Boeing 777 þotunni á meðan
Mynd sem tekin var af flugstjóranum þar sem hann svaf á Business Class farrými um borð í Boeing 777 þotunni
Pakistan International Airlines (PIA) hefur leyst einn flugstjóra hjá félaginu af störfum eftir að hann lagði sig í tvær og hálfa klukkustund á Business Class farrými vélarinnar.
Vélin var nýfarin í loft frá Islamabad á leið til London Heathrow þann 26. apríl sl.
þegar flugstjórinn, Amir Akhtar Hashmi, lét aðstoðarflugmanninn taka við stjórn vélarinnar á meðan hann fór aftur í vél og lagði sig á þriðju klukkustund.
Á meðan var aðstoðarflugmaðurinn, Mohammad Asad Ali, við stjórnvölin en hann var nýkomin úr þjálfun á vélina
sem er af gerðinni Boeing 777.
Hashmi er þjálfunarflugstjóri og hafði hann þjálfað Ali á vélina og átti hann að vera
undir hans leiðsögn í fluginu til London Heathrow.
Flugstjórinn, Amir Akhtar Hashmi, í fastasvefni á Business Class
Farþegar um borð í vélinni tóku myndir af flugstjóranum þar sem hann svaf værum svefni og deildu myndum af honum á samfélagsmiðla.
Málið var tekið til umræðu innan félags pakistanskra flugmanna þegar það spurðist út en
þaðan fór það inn á borð til flugmálayfirvalda í Pakistan sem líta á það með alvarlegum augum.
Talsmaður PIA segir að búið sé að víkja flugstjóranum frá störfum tímabundið á meðan málið er til rannsóknar en um borð í vélinni voru 305 farþegar.
Mikil spilling ríkir innan stjórnar PIA en einn framkvæmdarstjóri félagsins yfirgaf landið í gær
með áætlunarflugi þrátt fyrir að hann sé sjálfur á flugbannslista en hann hefur
verið til rannsóknar fyrir fjárdrátt upp á fleiri milljónir króna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.