flugfréttir
Embraer hefur afhent 1.100 einkaþotur frá upphafi
Starfsmenn Embraer mynda töluna 1.100 við verksmiðjurnar í Melbourne í Flórída
Flugvélaframleiðandinn Embraer fagnaði því fyrir helgi að hafa náð þeim áfanga að hafa afhent 1.100 einkaþotur frá upphafi.
Það var fyrirtækið NetJets sem tók við eittþúsund og eitthundruðustu einkaþotunni
þann 4. maí sl. sem er af gerðinni Phenom 300 en vélin var smíðuð í verksmiðjunum í Melbourne
í Flórída.
Embraer hefur á fyrsta ársfjórðungi afhent 18 farþegaþotur og 15 einkaþotur til viðskiptavina
sinna en einkaþotuviðskiptavinir Embraer eru í dag 640 talsins í yfir 70 löndum.
Embraer afhenti átta fleiri einkaþotur á sama tíma í fyrra þegar 23 þotur voru afhentar
frá janúar til lok marsmánaðar árið 2016.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.