flugfréttir
Rolls-Royce vill framleiða hreyfil fyrir Boeing 797
- Vilja koma aftur á markað minni þotuhreyfla
Tölvugerð mynd af hugmyndaflugvél merkt „Boeing 797“/ Myndin tengist ekki Boeing
Hreyflaframleiðandinn Rolls-Royce hefur boðið sig fram til þess að taka að sér þróun og framleiðslu á nýjum hreyfli til að knýja áfram Boeing 797 sem gæti orðið ný tegund farþegaþotu sem Boeing er að spá í að setja á teikniborðið.
Með því myndi Rolls-Royce aftur ryðja sér leið inn á markað þotuhreyfla fyrir minni farþegaþotur
en í dag framleiðir Rolls-Royce einungis hreyfla fyrir stórar þotur.
„Það er ekki spurning hvort við ætlum að sækjast eftir því - Við erum að sækjast eftir því“, segir
Warren East, framkvæmdarstjóri Rolls-Royce, sem bætir við að ný tegund af hreyfli
fyrir Boeing 797 gæti verið tilbúinn árið 2025.
Síðastliðinn sex ár hefur Rolls-Royce framleitt hreyfla
fyrir stórar þotur
Rolls-Royce hefur átt mikilli velgengni að fagna með Trent-hreyflana sem knýja áfram
í dag þotur af gerðinni Airbus A330, A340, Airbus A350 auk risaþotunnar Airbus A380
en þá má finna Trent-hreyfla á Boeing 777 og Dreamliner-þotunum.
Nýr hreyfill fyrir Boeing 797 myndi byggja á nærri tækni af hreyflakjarna sem verður
tilbúinn árið 2020 og kæmi hann með UltraFan með nýjum og öflugum gírkassa sem gerir hreyfilinn allt að 25% sparneytnari.
Óvíst er hvort að Rolls-Royce mun sjá alfarið um framleiðsluna en samstarf
við annað fyrirtæki kemur til greina.
Rolls-Royce yfirgaf framleiðslu á þotuhreyflum fyrir minni og meðalstórar farþegaþotur
eftir að fyrirtæki sleit samstarfi við Pratt & Whitney árið 2011 þar sem fyrirtækin tvö
komust ekki að samkomulagi varðandi hvaða framtíðartækni væri hentugust fyrir
hreyfla fyrir Airbus A320neo og Boeing 737 MAX.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.