flugfréttir

78 prósent vestrænna flugvéla í Rússlandi skráðar á Bermúda

- Rússar ætla setja lög sem neyða flugfélög að skrá vélarnar í Rússlandi

9. maí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:10

Boeing 777 þota Aeroflot

Flugmálayfirvöld í Rússlandi íhuga nú að banna rússneskum flugfélögum að skrá farþegaþotur, sem smíðaðar hafa verið af vestrænum flugvélaframleiðendum, í öðrum löndum en Rússlandi en með því yrðu allar þotur, sem eru í flota rússneskara flugfélaga, að verða skráðar í Rússlandi.

Mikhail Bulanov, yfirmaður flugmálayfirvalda Rússlands, Rosaviatsia, lýsti yfir þessu í ræðu sinni á ráðstefnunni „Aircraft Finance and Leasing Conference“ sem fram fer í Moskvu.

Flest rússnesk flugfélög hafa skráð vestrænar þotur á borð við flugvélar frá Airbus og Boeing í flota sínum á erlenda skráningu til að komast hjá því að greiða himinháa innflutningsskatta sem leggjast á þær þotur sem eru skráðar í Rússlandi.

Airbus A320 þota S7 Airlines með Bermúda-skráningu

Af þeim 743 vestrænu farþegaþotum, sem eru í flota rússneskra flugfélaga, þá eru 582 af þeim skráðar í Bermúda með forskeytið VQ sem samsvarar 78% af vestrænum flugvélum í Rússlandi á meðan 26 flugvélar eru skráðar á Írlandi.

Til að hraða skráningarferlinu þá er búið að koma upp 16 skráningarskrifstofum í Rússlandi en nú þegar er búið að ná að skrá 8 þotur á rússneska skráningu.

Bulanov segir að það gæti tekið allt að þrjú ár að skrá allar flugvélarnar á rússneska skráningu en alls eru 29 flugfélög í Rússlandi sem hafa flugvélar í flota sínum sem eru skráðar erlendis en flestar vélarnar eru í flota Aeroflot.

Aðeins Sukhoi Superjet 100 þoturnar hjá Aeroflot eru skráðar í Rússlandi en að öðru leyti er allur flotinn skráður á Bermúda-eyjum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga