flugfréttir
Vilhjálmur Ómar Sverrisson ráðinn sölustjóri Icelandair
Vilhjálmur Ómar Sverrisson
Vilhjálmur Ómar Sverrisson hefur verið ráðinn sölustjóri Icelandair á Íslandi.
Vilhjálmur starfaði fyrir MasterCard/Kreditkort á árunum 1999 til 2007 við ýmis störf og síðustu 2 árin sem markaðsstjóri. Frá 2007 til 2009 vann hann í eignastýringu hjá SPRON Verðbréfum.
Vilhjálmur hefur verið við nám og störf í Frankfurt síðan byrjun árs 2009. Eftir nám í lok árs 2010 hóf hann störf hjá BNP Paribas í Frankfurt við Client Management. Hann hóf störf hjá Icelandair í Frankfurt árið 2013 þar sem hann sá um ýmis verkefni fyrir Icelandair í Mið-Evrópu og starfaði sem sölustjóri fyrir þýskumælandi markaði í 2 ár. Hann hefur unnið frá áramótum hjá Flugfélagi Íslands við greiningu á flugáætlun, leiðarkerfi ofl.
Vilhjálmur er með M.Sc. gráðu í fjármálum frá Frankfurt School of Finance & Management. Hann er einnig löggiltur verðbréfamiðlari og með B.Sc gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.
Hann er kvæntur Guðrúnu Ástu Sigurðardóttur og börn þeirra eru Grímur Steinn (12 ára) og Ásta (5 ára).
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.