flugfréttir
Kennsluflugvél lenti á vegi sunnan við Akureyri
Mynd sem vegfarandi tók eftir að vélin hafði lent á veginum
Kennsluflugvél neyddist til að lenda á veginum við Hrafnagil, skammt sunnan við Akureyri í hádeginu í dag, eftir að vélin hafði missti afl á mótor.
Tilkynnt var um að lítil flugvél hefði misst afl á mótor og kom skömmu síðar í ljós að hún náði að lenda
á Eyjafjarðarbraut vestari.
Tveir voru um borð í vélinni, flugkennari og flugnemi, og sluppu þeir ómeiddir og er ekki vitað til þess að vélin hafi
orðið fyrir skemmdum.
Ökumenn, sem áttu leið hjá, náðu að stöðva bíla sína til að gefa vélinni tækifæri á að lenda og fylgdust þeir
með því er hún lenti á veginum.
Lögreglan á Norðurlandi eystra er á staðnum og þá er von á sérfræðingum frá Rannsóknarnefnd samgönguslysa á staðinn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.