flugfréttir
EASA hafnar umsókn Air Zimbabwe
Boeing 737-200 þota Air Zimbabwe
Air Zimbabwe hefur orðið fyrir enn örðu áfallinu en flugmálayfirvöld í Evrópu hafa hafnað umsókn félagsins um Third Country Operator (TCO) leyfi sem flugfélög utan Evrópu þurfa að að hafa gilt til að fá að fljúga til álfunnar.
Air Zimbabwe ætlaði sér að setja upp viðamikla viðgerðar- og viðhaldsstöð í Zimbabwe sem átti að vera miðstöð fyrir önnur flugfélög í suðurhluta Afríku þegar kemur að viðhaldi.
Með því ætlaði félagið sér einnig að láta aðra aðila sjá um
viðhald á vélum sínum í von um að sú breyting gæti fært félaginu aftur leyfi til að fljúga til Evrópu.
Í kjölfar þess að EASA hefur nú hafnað umsókn félagsins þá er óvíst með framhaldið
varðandi viðhaldsstöðina en framkvæmdarstjóri félagsins sagði árið 2016 að fjölbreytt þjónustu og dreifing hlutverka
innan félagsins væri lykilatriði fyrir Air Zimbabwe til að öðlast velgengni á ný.
Rekstur Air Zimbabwe hefur gengið mjög illa undanfarin ár og er félagið skuldum vafið en skuldir félagsins
nema um 31 milljarði króna.
Þrátt fyrir þetta er Air Zimbabwe staðráðið í að bæta úr rekstri félagsins og öðlast leyfi til þess að fljúga til Evrópu
á ný en eins og er félagið ekki lengur viðurkennt af Alþjóðasamtökum flugfélaganna (IATA) en félagið missti öryggisvottun
samtakanna í desember í fyrra.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.