flugfréttir
Flugprófanir með Boeing 737 MAX halda áfram
Boeing 737 MAX 8 þota í litum Batik Air Malaysia hefur sig á loft í gær frá Boeing Field
Flugprófanir með Boeing 737 MAX þoturnar eru hafnar að nýju eftir tveggja sólarhringa stöðvun en Boeing kyrrsetti tilraunavélarnar eftir að mögulegur galli fannst við framleiðslu á íhlutum fyrir LEAP-1B hreyfilinn.
Um kvöldmatarleytið í gær hóf sig á loft Boeing 737 MAX 8 þota frá Boeing Field
en sú vél verður afhent til Batik Air Malaysia.
Vélin, sem ber skráninguna 9M-LRC, flaug í eina klukkustund og 25 mínútur áður en hún
snéri aftir til Boeing Field.
Boeing segir að ákvörðun um að halda flugprófunum áfram hafi verið tekin í samráði við
flugmálastofnanir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.