flugfréttir
Flugstjóri hjá Biman Banglades fær æðstu viðurkenningu frá IFALPA
- Verðlaunin aðeins veitt á 5 ára fresti
Sayed Mahbub Helat tekur við viðurkenningunni á ráðstefnunni í Montréal
Flugstjóri frá flugfélaginu Biman Bangladesh fékk á dögunum æðstu viðurkenningu frá alþjóðasamtökum flugmanna (IFALPA) en þetta er í fyrsta sinn sem asískur flugmaður hlýtur þessi háttvirtu verðlaun.
Flugstjórinn, sem heitir Sayed Mahbub Helat, tók við verðlaununum á árlegri ráðstefnu IFALPA sem fram fór
í Montréal í Kanada þann 6. maí sl. og var hann verðlaunaður fyrir framlag sitt til endurbóta til flugsins.
Viðstaddir viðurkenningarathöfnina voru meðal annars yfirmenn frá Alþjóðaflugmálastofnuninni (ICAO) og
frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA).
Verðlaunin eru aðeins veitt á 5 ára fresti og var Sayed Mahbub Helat valinn til að taka við verðlaununum að þessu sinni af öllum þeim flugmönnum sem starfa í alþjóðasamfélaginu í fluginu.
Helat var á sínum tíma yfirmaður samtaka atvinnuflugmanna í Bangladesh en hann hóf störf hjá
Biman Bangladesh árið 1984.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.