flugfréttir

Fraktflugfélög hrökklast frá Brussel vegna reglna um hávaða

- Tvö flugfélög hafa hætt flugi til BRU og fleiri íhuga það sama

15. maí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 16:48

Júmbó-fraktþotur Air Cargo Global á flugvellinum í Brussel

Mikil óánægja ríkir meðal þeirra fraktflugfélaga sem fljúga til Brussel eftir að belgísk stjórnvöld tóku nýverið í gagnið nýjar og strangar reglugerðir varðandi hávaða frá flugvellinum sem er sá stærsti í Belgíu.

Nokkur fraktflugfélög hafa lýst því yfir að þau ætli sér að hætta að fljúga til Brussel en kínverska fraktflugfélagið Yangtze River Express hefur nú þegar hætt flugi þangað og flaug síðasta flugið til Belgíu í febrúar.

Slóvneska flugfélagið Air Cargo Global ætlar sér að hætta að fljúga með frakt til Brussel og þá er fraktfélagið Magma Aviation einnig að íhuga að hætta flugi þangað.

Stjórn flugvallarins í Brussel er mjög óánægð með ákvörðun stjórnvalda en tvö fraktflugfélög af þeim sex, sem fljúga með Boeing 747 fraktþotur til Belgíu, hafa nú hætt flugi þangað og fleiri gætu fylgt í kjölfarið.

Júmbó-þota Magma Aviation á flugvellinum í Brussel

Háar sektir fylgja því að brjóta lög um hávaða frá flugvélum á vissum tímum sólarhringsins en mörg fraktflugfélög fljúga til Brussel á nóttunni.

Air Cargo Global hefur skrifað bréf til stjórn flugvallarins vegna málsins og hótar félagið að færa starfsemi sína yfir til Hollands með því að fljúga til Amsterdam og jafnvel til Prag í Tékklandi þess í stað.

Magma Aviation segir að félagið muni á næstu vikum hætta fluginu til Brussel og sé flugfélagið með augastað á tveimur flugvöllum í nágrannalöndunum til skoðunar.

Flugvöllurinn í Brussel hefur varað belgísk stjórnvöld við áhrifunum frá hávaðalögunum þar sem mörg störf eru í húfi en Yangtze River Express flaug árið 2016 með 20.000 tonn af frakt til Brussel sem er 12% af öllum innflutningi til landsins með flugfrakt.

Ekki er um nýja reglugerð að ræða þar sem lög við hávaðamengun frá flugvellinum voru sett árið 1999 en frá og með 22. apríl sl. var ákveðið að beita háum sektum fyrir þau flugfélög sem flugu flugvélum til vallarins þar sem hávaði frá þeim fer yfir 9 desibil umfram það sem lög gera ráð fyrir að degi til og yfir 6 desibil að næturlagi.

Belgísk stjórnvöld hafa frestað því um 1 til 2 ár að innheimta sektarupphæðirnar en framkvæmdarstjóri flugvallarins segir það breyta engu þar sem nokkur flugfélög hafa nú þegar gert upp hug sinn og ætla að frá að hverfa.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga