flugfréttir

Börn sem sniffa flugvélabensín orðið vandamál í Ástralíu

- Mörg ungmenni flutt með blýeitrun til aðhlynningar

16. maí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 15:21

Unglingur upp á væng á lítilli flugvél að anda að sér flugvélabensíni

Heilbrigðisyfirvöld í Ástralíu hafa sent út viðvörun í kjölfar þess að fjölmörg atvik hafa átt sér stað að undanförnu þar sem ungmenni hafa verið staðin að því að sniffa flugvélabensín.

Til að mynda hafa náðst nokkrar myndbandsupptökur úr öryggismyndavélum á flugvellinum á Elcho-eyju, við norðurströnd Ástralíu, þar sem sjá má unglinga og börn sem höfðu farið inn á flugvallarsvæðið í skjóli nætur og klifrað ofan á flugvélar til að sniffa Avgas-flugvélabensín úr eldsneytistönkunum.

Í tilkynningu frá heilbrigðisyfirvöldum í Ástralíu kemur fram að anda að sér flugvélabensíni sé mun hættulegra en að sniffa bílabensín þar sem það inniheldur blý sem er mjög skaðlegt fyrir taugakerfið við innöndun auk þess sem það er skaðlegt fyrir nýru og fleiri líffæri.

Yfir 100 ungmenni hafa verið gómuð við þessa iðju á Elcho Islands flugvellinum og öðrum flugvöllum í nágrenninu frá því í mars árið 2016.

„Börnin okkar eru að enda inn á spítala með sýkingu vegna eiturefna í lungum“, segir einn aðili sem starfar á vegum heilbrigðisyfirvalda en níu börn og einn fullorðinn hafa verið flutt til aðhlynningar vegna þessa í Darwin þar sem þau þurftu að gangast undir sérstaka læknismeðferð.

Ástralska ríkið hefur nú þegar varið 5,3 milljónum króna í forvarnir með því að hafa m.a. öryggisvörð á nóttunni á Elcho-flugvellinum.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga