flugfréttir
Boeing hefur afhent fyrstu 737 MAX þotuna
- Er á leiðinni til Malasíu í augnablikinu
9M-LRC í flugtaki í gær á Boeing Field á leið í afhendingarflugið til Malasíu
Boeing hefur afhent fyrsta eintakið af Boeing 737 MAX þotunni en vélin er núna í miðju afhendingarflugi á leiðinni til Malasíu.
Það er malasíska flugfélagið Malindo Air sem tekur við vélinni sem er máluð í litum Batik Air Malaysia
en Malindo Air ætlar sér að breyta nafni félagsins sem er dótturfélag Lion Air.
Fyrsta afhendingareintakið af Boeing 737 MAX þotunni, sem ber skráninguna 9M-LRC, fór í loftið
frá Boeing Field í Seattle í gærkvöldi klukkan 20:47 að íslenskum tíma og lenti vélin í Anchorage í Alaska
klukkan 00:30.
Vélin hafði viðdvöl í Anchorage í tæpa klukkustund og fór hún í loftið aftur klukkan 01:25 og var förinni
næst heitið til Narita-flugvallarins í Tókýó þar sem vélin lenti klukkan 9 í morgun að íslenskum tíma
eftir 8:30 klukkustunda flug yfir Kyrrahafið.
9M-LRC á Flightradar24.com klukkan 11:32
Í Tókýó tók vélin eldsneyti og eftir eina og hálfa klukkustund, eða klukkan 10:23 í morgun, fór hún aftur í
loftið og var klukkan 11:32 í 38.000 fetum, skammt suður af Nagoya.
Boeing á eftir að afhenda yfir 3.800 eintök af Boeing 737 MAX þotunni en Malindo Air mun fá sjö vélar
til viðbótar en móðurfélagið, Lion Air, á von á 200 eintökum af Boeing 737 MAX og er það félag
því stærsti viðskiptavinurinn.
Malindo Air mun fljúga fyrsta farþegaflug heims með Boeing 737 MAX næstkomandi mánudag (22. maí)
frá Kuala Lumpur til Singapore.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.