flugfréttir
Verkfall gæti haft áhrif á framleiðslu á væng fyrir A350
Úr verksmiðjum GKN Aerospace í Bristol
Tafir gætu orðið á framleiðslu á væng fyrir Airbus A350 þoturnar þar sem allt stefnir í verkfall meðal starfsmanna í verksmiðjum Airbus í Bristol á Bretlandi.
GKN Aerospace framleiðir m.a. vængi fyrir Airbus A350 þotuna og A400M herflutningavélina en 90% af starfsmönnum fyrirtækisins hafa kosið með
verkfallsaðgerðum sem þýðir að starfsemin mun stöðvast.
Vinnustöðvunin mun hafa áhrif á yfirvinnu starfsmanna frá og með 25. maí
næstkomandi og mun fyrirtækið því ekki geta haldið úti eðlilegri afkastagetu.
Verkalýðsfélagið Unite segir að starfsmenn GKN Aerospace hafi ekki fengið
neina launahækkun í fyrra né á þessu ári á sama tíma og yfirmenn hafa fengið
veglegar bónusgreiðslur.
Stjórn GKN Aerospace hefur komið sökinni á launadeildina og er sagt
að um tæknilega örðuleika hafi verið að ræða.
Verkalýðsfélagið mun setjast niður með stjórn GKN Aerospace næst þann
30. maí.
Nú þegar hafa orðnar tafir á afhendingum á Airbus A350 þotunni sem er að mestu
tilkomin vegna tafa hjá birgjum og þeim fyrirtækjum sem framleiða íhluti í vélina.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.