flugfréttir
EasyJet breytir pöntun í 30 Airbus A320neo yfir í A321neo
Tölvugerð mynd af Airbus A321neo þotu easyJet
Breska lágfargjaldafélagið easyJet hefur náð samkomulagi við Airbus um að breyta pöntun sinni í 30 Airbus A320neo þotur yfir í stærri tegundina, Airbus A321neo.
Airbus A321neo vélarnar munu koma með sætum fyrir 235 farþega og ætlar easyJet
sé með því að nota stærri vélar til þeirra flugvalla sem eru orðnir þéttsetnir.
Yfir helmingur flugflota easyJet samanstendur þó af minni vélum en 54% flotans telur Airbus A319 vélina og hefur félagið 144 slíkar vélar á móti 122 þotum af gerðinni Airbus A320. Allur flotinn telur 266 flugvélar.
Airbus A321 hefur helmingi fleiri sæti en Airbus A319 þoturnar og 30% fleiri sæti en
Airbus A320 og á það einnig við neo-vélarnar.
Carolyn McCall, framkvæmdarstjóri easyJet, segir að með sparneytni Airbus A320neo
vélanna mun félagið geta tryggt áframhaldandi lág fargjöld.
EasyJet á von á 27 Airbus A320 þotum til viðbótar, 100 þotum af gerðinni Airbus A320neo
og þrjátíu Airbus A321neo vélum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.