flugfréttir
National mun hefja fraktflug kringum jörðina
Boeing 747-400F fraktþota National Airlines
National Airlines ætla sér að hefja fraktflug í kringum jörðina frá og með 1. júní í samvinnu við bandaríska fraktfyrirtækið Navitrans.
Fraktflugið kringum jörðina mun hefjast í Chicago og verður
flogið frá O´Hare-flugvellinum til Liege, Baku, Hong Kong, Tókýó, Anchorage í Alaska og þaðan aftur til Chicago.
Þá mun National Airlines einnig fljúga tvisvar í viku milli
Bandaríkjanna og Kína og sótti félagið í seinustu viku um undanþáguleyfi
til samgönguráðuneytis Bandaríkjanna fyrir fraktflutningum á varningi
og pósti milli landanna tveggja.
Navitrans er flutningafyrirtæki í New York sem sérhæfir sig í leigufraktflugi en National Airlines hefur höfðustöðvar sínar í Orlando.
Starfsemi National Airlines er aðallega á sviði fraktflugs með
Boeing 747-400F þotur en félagið hefur einnig Boeing 757-200 vélar
sem leigðar eru út fyrir farþegaflug.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.