flugfréttir
UPS mun endurnýja stjórnklefa á 52 Airbus A300 fraktþotum
- Fá ný stjórnkerfi, nýjar flugtölvur og stærri skjái
Airbus A300 fraktþota United Parcel Service
Vöruflutningarisinn United Parcel Service (UPS) hefur gert samning við Honeywell og Airbus um uppfærslu á stjórntækjum, skjám og tölvubúnaði á 52 Airbus A300 þotum sem félagið hefur í flota sínum.
Með því mun líftími vélanna lengjast um a.m.k. 18 ár en meðal annars verður nýjum flugtölvum (FMS)
og nýjum RVR 4000 veðurratsjám komið fyrir í vélunum auk þess sem þær munu fá LCD skjái fyrir báða flugmenn, nýtt
Integrated Standby Instrument kerfi, nýjan ACARS-búnað og þá verður skipt um viðhaldstölvukerfi og árekstrarvara.
Búist er við því að lokið verður við að uppfæra stjórnklefann í Airbus A300-600 vélunum í ágúst árið 2022 en hafist verður
handa við að endurnýja fyrstu vélina í byrjun næsta árs.
Verkefnið mun fara fram í breytingar- og tilraunamiðstöð Airbus í Toulouse en framleiðandinn á von á því að fá
vottun fyrir breytingunum árið 2020.
Stærsta byltingin fyrir Airbus A300 vélar UPS verður að fá nýja flugtölvu sem kemur með gangagrunni sem heldur utan
um flugupplýsingar og flugvelli um allan heim en þær munu koma með Future Air Navigation System (FANS).
Núverandi flugtölvur (FMS) í Airbus A300 vélum félagsins hafa ekki nægilega stórt minni og geyma þær því aðeins upplýsingar fyrir lítil svæði með fáum flugvöllum og þarf því að setja upp nýjan gagnagrunn í hvert skipti sem hver
flugvél ætlar að fljúga til annarra svæða en hún hefur flogið fram að því.
Airbus A300 vélarnar munu fá rafeindabúnað og skjái frá Honeywell af gerðinni Primus Epic sem mun sýna
flugmönnum m.a. þrívíddarásýnd á jarðsvæði en vegna þessa er þörf á breytingum á rafkerfi í stjórnklefanum og þá
þarf að skipta út öðrum stjórntækjum, kerfum og tengingum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.