flugfréttir
EASA tekur Benin og Mozambique af svarta listanum
- Fjögur flugfélög bætast við
Boeing 737-200 þota LAM Mozambique Airlines
Flugmálayfirvöld í Evrópu hafa uppfært lista yfir þau flugfélög sem fá ekki að fljúga til evrópskra flugvalla í þeim löndum sem eru aðilar að Evrópusambandinu.
Öll flugfélög í Benin og í Mozambique fá nú að fljúga til Evrópu og hafa löndin
tvö verið fjarlægð af listanum.
Ekki þótti ástæða lengur til að vera með löndin á bannlistanum þar sem þau hafa bæði
náð að bæta öryggi í fluginu sem uppfylla nú skilyrði Evrópusambandins.
Enn eru 16 lönd í Afríku á listanum sem hafa ekki náð að auka flugöryggi í sínum löndum
og fá flugfélög þeirra landa því ekki að fljúga til Evrópu.
„Það gleður okkur að við getum fjarlægt öll flugfélög í Benin og Mozambique af
öryggislistanum sem endurspeglar að aðgerðir til að bæta úr flugöryggismálum skila
sér“, segir í yfirlýsingu frá EASA.
Fjögur flugfélög bættust hinsvegar við á svarta listann sem eru
Med-View Airlines í Nígeríu, Mustique Airways í Karíbahafi, Air Urga í Úkraínu og
Air Zimbabwe.
Meðal annarra landa sem eru á listanum og fá ekki að fljúga til Evrópu eru Afghanistan,
Angóla, Kongó, Djibouti, Miðbaugs-Gínea, Eritrea, Gabon, Indónesía, Kyrgyzstan, Líbería,
Líbýa, Nepal, Sao Tomé and Principe, Sierra Leone og Súdan.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.