flugfréttir
Fyrsta áætlunarflug heims með Boeing 737 MAX tók 47 mínútur
Boeing 737 MAX þota Malindo Air
Fyrsta áætlunarflugið í heimi með Boeing 737 MAX var flogið í nótt að íslenskum tíma en það er malasíska flugfélagið Malindo Air sem flaug fyrsta MAX-flugið frá Kuala Lumpur til Singapore.
Malindo Airlines fékk fyrsta eintakið af Boeing 737 MAX í seinustu viku
en vélin er máluð í litum dótturfélagsins Batik Malaysia.
Boeing 737 MAX þotan, sem ber skráninguna 9M-LRC, fór í loftið
frá flugvellinum í Kuala Lumpur klukkan 03:08 að íslenskum tíma og lenti vélin í Singapore klukkan 3:55.
„Við erum mjög ánægð yfir því að vera fyrsta flugfélagi í heimi til
til að taka við fyrstu Boeing 737 MAX 8 þotunni en Boeing 737NG vélarnar hafa þjónað Malindo mjög vel að undanförnu og trúum við
því að 737 MAX eigi eftir að verða burðarásinn í flotanum“, segir
í yfirlýsingu frá félaginu.
Malindo Air mun fá þrjár Boeing 737 MAX vélar afhentar til viðbótar
á þessu ári.
Fyrsta áætlunarflugið með Boeing 737 MAX á Flightradar24.com
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.