flugfréttir
Air Greenland íhugar stærri flugvélar með tilkomu lengri flugbrauta
- Nýr framkvæmdarstjóri hefur tekið við stjórn félagsins
Bombardier Dash-8 Q200 flugvél Air Greenaland
Air Greeland íhugar nú að festa kaup á stærri vélum í kjölfar yfirlýsinga grænlensku landstjórnarinnar sem hefur ákveðið að ráðast í framkvæmdir við lengingu flugbrauta á a.m.k. þremur flugvöllum á Grænlandi.
Lengri flugbrautir á Grænlandi mun gera erlendum flugfélögum kleift til að hefja áætlunarflug frá Evrópu til Grænlands og hefur Air Greenland íhugað að breyta flotastefnu sinni bæði til að tryggja samkeppnishæfni sína þegar lengri flugbrautir verða teknar í notkun en einnig til að gera innanlandsflugreksturinn hagkvæmari.
Áhugi erlendra ferðamanna á Grænlandi hefur aukist til muna og voru 9% aukning á ferðamönnum til landsins í fyrra en Air Greeland hefur óttast afleiðingarnar sem lengri flugbrautir munu hafa í för með sér og lækkaði fyrrverandi framkvæmdarstjóri verðmæti þeirrar einu Airbus A330 breiðþotu félagsins í vetur þegar ákveðið var að lengja flugbrautir á Grænlandi.
Air Greenland hefur meðal annars skipt um framkvæmdarstjóra og hefur Michael Højgaard sagt skilið
við stjórn flugfélagsins grænlenska en Søren Lennert Mortensen hefur tekið við stjórnartaumunum.
Søren segir að um sameiginlega ákvörðun hafi verið að ræða og sé „ekkert drama“ í kringum
framkvæmdastjóraskiptin en Søren tekur fram að nauðsynlegt hafi verið að skipta um
framkvæmdarstjóra til að halda í við nýja stefnumótun félagsins.
Þurfa að endurskoða flotann
Endurskoðun á flotastefnu félagsins og möguleg flugvélakaup er eitt af þeim verkefnum sem bíða
nýs framkvæmdarstjóra Air Greenland en eitt af því sem flugfélagið þarf að gera nú er að
endurskoða og meta hvort að núverandi flugfloti verði hagstæðasti kosturinn þegar lenging
flugbrauta á nokkrum flugvöllum á Grænlandi verður lokið.
Michael Højgaard hefur látið af störfum sem framkvæmdarstjóri Air Greenland
„Lengri flugbrautir í Nuuk, Ilulissat og Qaqortog mun gjögbreyta landslaginu í rekstri
félagsins og verðum við því að endurskoða flotann og stefnu okkar í flugi yfir Atlantshafið“, segir
Søren.
„Þar sem að enn er ósvarað varðandi nákvæma lengingu á flugbrautum þá erum við
soldið að fikra okkur blint áfram. Við erum í dag með Dash-8 vélar og það er ekki víst
að þær verði rétti flugkosturinn þegar upp er staðið. Mögulega þá gætum við farið yfir
í Bombardier Q400 vélar og þá kemur til greina að skipta út Airbus A330-200 þotunni
fyrir aðra tegund“, segir Søren.
Bombardier Dash-8 Q200 vélarnar taka 37 farþega á meðan Q400 vélarnar taka 76 farþega
sem myndi skila félaginu meiri hagkvæmni þegar lenging flugbrauta á Grænlandi lýkur.
Søren Lennert Mortensen hefur tekið við rekstri Air Greenland
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.