flugfréttir

Fjöldaframleiðsla hefst á Pilatus PC-24 einkaþotunni

- Biðlisti eftir fyrstu einkaþotu Pilatus - Hafa lokað fyrir pantanir í bili

23. maí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 15:40

Fyrsta eintakið af Pilatus PC-24 þotunni var ýtt úr samsetningu í Sviss árið 2014

Svissneski flugvélaframleiðandinn Pilatus hefur hafið fjöldaframleiðslu á Pilatus PC-24 einkaþotunni en þrjár tilraunaþotur af verið smíðaðar af vélinni sem flaug sitt fyrsta flug þann 11. maí árið 2015.

Pilatus PC-24 er fyrsta þotan sem Pilatus hefur framleitt en hingað til hefur vinsælasta flugvél framleiðandans verið Pilatus PC-12 sem er eins hreyfils skrúfuflugvél sem hefur selst í yfir 1.400 eintökum frá því hún kom á markaðinn árið 1994.

Það er bandaríska fyrirtækið PlaneSense sem mun fá fyrstu Pilatus PC-24 þotuna afhenta fyrir lok þess árs en nú þegar er búið að mála vélin í litum viðskiptavinarins

Fyrsta eintakið af PC-24 þotunni hefur verið málað í litum PlaneSense

Það er BMW Designworks sem hefur hannað farþegarýmið um borð í Pilatus PC-24 þotunni og stendur viðskiptavinum til boða að velja úr sex mismunandi innréttingum sem nefnd eru eftir vinsælum skíðaáfangastöðum í Sviss.

Þrjár PC-24 tilraunaþotur hafa til samans lokið við 1.525 klukkustundir af flugprófunum í 950 flugferðum.

Búið er að panta 84 eintök af þotunni en Pilatus hefur lokað fyrir pantanir í þotuna í bili og hefur myndast biðlisti eftir vélinni en opnað verður fyrir pantanir að nýju á næstunni. Pilatus ætlar sér að framleiða yfir 4.000 eintök af PC-24 þotunni.

Þrjár tilraunaþotur hafa verið smíðaðar af Pilatus PC-24







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga