flugfréttir
Nýja Cyprus Airways mun hefja áætlunarflug 23. júní
Airbus A319 þota Cyprus Airways
Nýja kýpverska Cyprus Airways ætlar sér að hefja áætlunarflug þann 23. júní næstkomandi en félagið mun fljúga fyrst um sinn frá Larnaca til Rhodes og Heraklion.
Félagið byrjar með eina Airbus A319 þotu og hófst farmiðasala þann 15. maí sl. en þá mun félagið einnig hefja
flug til Tel Aviv og til tveggja annarra áfangastaða.
Cyprus Airways varð gjaldþrota í janúar árið 2015 eftir 67 ára flugrekstur en félagið var stofnað árið 1947 og hóf
starfsemi sína ári síðar.
Það er rússneska flugfélagið Charlie Airlines sem tók á leigu notkun á merki og ímynd Cyprus Airways frá kýpversku
ríkisstjórninni árið 2016 til tíu ára en Charlie Airlines er í eigu S7 Airlines.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.