flugfréttir
Boeing í viðræðum við SaudiGulf um sextán Boeing 777 þotur
Flugvélamódel af Boeing 777 þotunni
SaudiGulf Airlines er í viðræðum við Boeing um pöntun á annan tug farþegaþotna af gerðinni Boeing 777.
SaudiGulf gerir ráð fyrir að búið verð að ganga frá kaupum á sextán Boeing 777 þotum fyrir haustið
en flugfélagið sádí-arabíska tilkynni fyrr í vikunni um að félagið væri í viðræðum við Boeing
um pöntun á breiðþotum.
Vélarnar verða afhentar frá og með árinu 2020 en félagið ætlar sér að nota þær í millilandaflugi
til Norður-Ameríku auk þess sem vélarnar verða notaðar til Evrópu og Asíu en SaudiGulf
er er eins árs gamalt flugfélag sem í dag flýgur eingöngu innanlandsflug í Sádí-Arabíu.
SaudiGulf gerir ráð fyrir að fljúga með 700.000 farþega á þessu ári sem verður fyrsta heila
árið í rekstri félagsins en áfangastaðir SaudiGulf í dag eru Damman, Jeddah og Riyadh.
SaudiGulf mun fá aukna samkeppni síðar á árinu en þá mun ríkisflugfélagið Saudi Arabian Airlines
hleypa af stokkunum dótturfélaginu flynas.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.