flugfréttir
Antonov Airlines eykur umsvif sín og endurnýjar stjórntæki
Antonov An-125 flutningavél Antonov Airlines
Antonov Airlines ætlar sér að stækka leiðarkerfi sitt á alþjóðamarkaði og hefur flugfélagið úkraínska sett upp skrifstofur í Bandaríkjunum og í Hong Kong í tengslum við aukin umsvif.
Úkraína hefur náð góðum tengslum við Bandaríkin með tilkomu loftferðasamkomulags sem hefur
orðið til þess að Antonov Airlines hefur geta flogið til Ameríku án þess að sækja um undanþáguleyfi
til bandarískra stjórnvalda.
Antonov Airlines hefur opnað söluskrifstofur á Stansted-flugvellinum í London og þá hafa verið
ráðnir sölufulltrúar í Japan og í Ástralíu.
Þá er unnið að því að gera samninga við birgja í þeim tilgangi að gera betrumbætur á flugflota
félagsins en til að mynda verður nýjum hjólum komið fyrir á Antonov An-124 og An-225 vélunum
svo þær geti nýtt hámarksburðargetu sína.
Þá er Antonov Airlines einnig í samvinnu við Honeywell sem mun framleiða ný stjórnkerfi
um borð í vélarnar og aðra birgja á borð við Pratt & Whitney, Zodiac Aerospace og Downey Propellers.
„Antonov An-124 flutningavélarnar verða í flota félagsins að minnsta kosti næstu 25 árin og við munum
sjá til þess að þær fái alla þá tækni sem völ er á í iðnaðinum líkt og nýjar flugvélar“, segir
Graham Witton, rekstarstjóri Antonov Airlines.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.