flugfréttir

Piaggio afhendir fyrstu Avanti Evo flugvélina til Ameríku

25. maí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 10:56

Piaggio Avanti Evo flugvélin

West Coast Aviation Services (WCAS) varð á dögunum fyrsti viðskiptavinurinn í Norður-Ameríku til að fá Piaggio Avanti Evo flugvélina afhenta frá ítalska flugvélaframleiðandanum Piaggio Aero.

Avanti Evo er sérstök flugvél sem kemur með tveimur skrúfumótorum sem hafa skrúfuna staðsetta fyrir aftan mótorinn auk þess sem vélin kemur með litlu nefstéli framan á vélinni.

West Coast Aviation Services pantaði allt að tíu Piaggio Avanti Evo flugvélar í nóvember í fyrra en fyrirtækið mun fyrir mánaðarmótin fá næstu vél afhenta frá Ítalíu og næstu vélar verða afhentar til ársins 2021 í framhaldi af því.

Piaggio reiddi sig að mestu á pöntun frá bandaríska fyrirtækinu Avantair í Flórída en það fyrirtæki varð gjaldþrota árið 2013 eftir að hafa pantað yfir 40 eintök af Piaggio Avanti Evo vélinni.

Vélin kom á markaðinn árið 2014 og er hún arftaki Avanti II vélarinnar sem var þróuð fyrst árið 2005 en sú vél tók við af upprunalegu Avanti-vélinni sem var kynnt til leiks á tíunda áratug síðustu aldar.

Piaggio hefur afhent alls 220 Avanti-vélar en níu af þeim eru af nýjustu kynslóðinni, Avanti Evo.

Piaggio P.180 Avani vélina er meðal annars að finna í ítalska flughernum auk þess sem flugherinn í Búlgaríu, Kanada, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og í Póllandi hafa vélina í flota sínum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga