flugfréttir

Metfjöldi atvinnuflugmanna útskrifaðist frá Flugskóla Íslands

- Fjölgun ferðamanna kallar á mikla þörf fyrir fleiri atvinnuflugmenn

29. maí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 18:26

ATPL hópur Flugskóla Íslands, ásamt skólastjóra Flugskóla Íslands, skólameistara Tækniskólans og aðstoðarskólameistara.

Flugskóli Íslands brautskráði þann 24. maí sl. 58 nemendur við hátíðlega athöfn en þetta er stærsti hópur atvinnuflugmanna sem nokkur skóli hefur útskrifað hér á landi.

Baldvin Birgisson, skólastjóri Flugskóla Íslands, nefndi það í ræðu sinni að vegna aukinna umsvifa í ferðaþjónustu kallar atvinnulífið á fagmenntaða flugmenn sem aldrei fyrr en Flugskóli Íslands er einn af undirskólum Tækniskólans.

Verðlaunahafar

Fjögur fyrirtæki veita viðurkenningu fyrir bestan heildarárangur í atvinnuflugmannsnámi en það eru fyrirtækin Air Atlanta, Icelandair, Wow Air og Norlandair en það var Daníel Örn Steinarsson sem hlaut þær viðurkenningar.

Daníel Örn Steinarsson tekur við viðurkenningum fyrir bestan
heildarárangur

Einnig hlutu Steinar Andri Einarsson og Snædís Erla Leósdóttir viðurkenningu fyrir góðan námsárangur.

Til þess að skera úr um röðun á hæstu einkunn, þurfti að nota tvo aukastafi en sex nemendur skólans voru með 9,7 í lokaeinkunn en allir þessir sex nemendurnir fengu að launum flugtíma í þotuflughermi skólans.

Nemandi ársins hjá Flugskóla Íslands, valinn af stjórnendum skólans, er Sigurður Ingi Jónsson en Sigurður var valinn fyrir áræðni og elju að ljúka atvinnuflugmannsnámi 58 ára að aldri. Norlandair gefur nemanda ársins gjafabréf.

Hægt er að smella á myndina til að sjá stóra útgáfu af atvinnuflugmannsnemunum



Sigurður Ingi Jónsson var valinn nemandi ársins hjá Flugskóla Íslands







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga