flugfréttir
TAP Portugal á von á seinkunum á Airbus A330neo þotunum
Tölvugerð mynd af Airbus A330neo þotu TAP Portugal
TAP Portugal á von á því að einhver seinkun verði á afhendingum á fyrstu Airbus A330neo þotunni en flugfélagið portúgalska mun fá fyrsta eintakið af vélinni á næsta ári, fyrst allra flugfélaga.
TAP Portugal á von á því að fá fyrstu vélina í júní eða júlí árið 2018 en segir að afhendingar gætu frestast fram á haustið en upphaflega stóð til að Airbus myndi hefja afhendingar á Airbus A330neo á þessu ári.
Airbus ætlaði sér að fljúga fyrstu Airbus A330neo tilraunarþotunni í sumar en engin dagsetning hefur verið ákveðin ennþá.
TAP Portugal hefur pantað fjórtán Airbus A330-900 vélar af þeim 210 sem pantaðar hafa verið frá Airbus en AirAsia X er með stærstu pöntunina í 66 eintök af vélinni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.