flugfréttir
Cathay Pacific mun segja upp 600 starfsmönnum
- Þar af verða 190 manns í stjórn félagsins sagt upp
Airbus A330 þota Cathay Pacific
Cathay Pacific hefur lýst því yfir að til standi að fækka stöðugildum hjá félaginu og þá aðallega í stjórn félagsins.
Til stendur að segja upp 600 starfsmönnum í höfuðstöðvum
Cathay Pacific í Hong Kong og þar af verður 190 starfsmönnum í stjórnardeildum sagt upp í sínum
störfum en mögulegt er að einhverjir starfsmenn verði færðir til og
settir í aðrar stöður.
Þetta er hluti af hagræðingu í rekstri bæði hjá Cathay Pacific og hjá
dótturfélaginu Cathay Dragon en ekki mun koma til neinna uppsagna
meðal flugmanna og áhafna.
Allir þeir starfsmenn sem verður sagt upp munu fá starfslokasaming sem hljóðar upp á launagreiðslur í 12 mánuði, aukin fríðindi, ferðafríðinda auk þess
sem Cathay Pacific mun aðstoða þá í atvinnuleit í sama iðnaði og þjálfa
þá fyrir atvinnuviðtöl.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.