flugfréttir

Fyrsta flug Icelandair til Philadelphia

31. maí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:00

„Vatnajökull“ lentur eftir fyrsta flugið til Philadelphia

Icelandair flaug í gær sitt fyrsta áætlunarflug til Philadelphia í Bandaríkjunum en félagið kynnti borgina sem nýjan áfangastað í október 2016.

Jómfrúarflugið til Philadelphia hóf sig á loft frá Keflavíkurflugvelli klukkan 17:10 og var fyrsta flugið flogið með „Vatnajökli“ (TF-FIR).

Vélin lenti í Philadelphia klukkan 19:03 að austurstrandartíma en flugtíminn var 5 klukkustundir og 49 mínútur.

Við hátíðlega athöfn við brottför fyrsta flugsins frá alþjóðaflugvellinum í borginni fluttu Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, Jim Kenney, borgarstjóri Philadelphia og Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóra Icelandair, ávörp.

Dagur heimsótti Philadelphia í boði starfsbróður síns í tilefni af hinni nýju tengingu milli borganna og Jim Kenney flýgur til Íslands með fyrsta fluginu og dvelur í Reykjavík í boði borgarstjórnar næstu daga.

Philadelphia er ein af þekktustu borgum Bandaríkjanna, en hún tilheyrir Pennsylvaniufylki og er mitt á milli New York og Washington. Phildadelphia er einn af helstu sögustöðum Bandaríkjanna er bæði sjálfstæðisyfirlýsingin (1776) og stjórnarskráin (1787) voru staðfest og undirrituð þar.

Borgin er ein sú stærsta í Bandaríkjunum en íbúafjöldi hennar og næsta nágrennis er um 7,2 milljónir. Flogið verður fjórum sinnum í viku, en alþjóðaflugvöllinn í borginni er meðal umferðarmestu flugvalla Norður-Ameríku.

Icelandair flýgur á þessu ári til 18 áfangastaða í Norður-Ameríku og 26 í Evrópu.

Slökkviliðsbílar taka á móti Vatnajökli með vatnsboga við komuna til Philadelhipa



Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdarstjóri Icelandair, sker viðhafnartertu á fréttamannafundi á flugvellinum í gær að viðstöddum Degi borgarstjóra og Jim Kenney, borgarstjóra Philadelphia







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga