flugfréttir

Möguleg flugránstilraun um borð í þotu Malaysia Airlines

- Flugvellinum í Melbourne hefur verið lokað

31. maí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 15:58

Airbus A330 þota Malaysia Airlines á flugvellinum í Melbourne

Farþegi reyndi að komast inn í stjórnklefa á Airbus A330 þotu frá Malaysia Airlines skömmu eftir flugtak frá Melbourne í Ástralíu nú fyrir skömmu og er talið að um mögulegt flugrán hafi verið að ræða.

Vélin fór í loftið frá Melbourne klukkan 13:11 í dag að íslenskum tíma áleiðis til Kuala Lumpur en skömmu eftir flugtak reyndi farþegi að komast inn í stjórnklefa vélarinnar og ákváðu flugmennirnir að snúa vélinni aftur til Melbourne.

Fram kemur að flugstjórinn hafi látið flugumferðarstjóra vita að um borð væri farþegi sem kvaðst vera með sprengiefni á sér en hann hafi verið yfirbugaður af öðrum farþegum í vélinni.

Vélin lenti 15 mínútum síðar aftur í Melbourne og lagði vélin á fjarlægu stæði þar sem hún var umkringd lögreglu, sérsveitarmönnum og öðru neyðarteymi.

Farþegi, sem er um borð í vélinni, segir að farþeginn hafi haldið á einhvers konar raftæki og sé því ekki um sprengju að ræða.

Flugvellinum í Melbourne hefur verið lokað í augnablikinu og þá hefur verið lokað fyrir bílaumferð til og frá flugvellinum vegna atviksins.

Nokkrum flugvélum hefur verið gert að lenda á Avalon-flugvellinum sem er í um 50 kílómetra fjarlægð suðvestur af Melbourne-flugvelli.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga