flugfréttir

Icelandair flýgur sitt fyrsta flug til Belfast

- Flogið með Bombardier Q400 vélum frá Air Iceland Connect

1. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 16:38

Air Iceland Connect mun annast flugið milli Keflavíkurflugvallar og Belfast

Icelandair hóf í dag beint áætlunarflug til Belfast á Norður-Írlandi en flogið verður þrisvar sinnum í viku, allan ársins hring, á þriðjudögum, fimmtudögum og sunnudögum.

Air Iceland Connect annast flugið á Bombardier Q400 flugvél félagsins sem tekur 72 farþega í sæti í samstarfi við Icelandair.

Flogið er til og frá Keflavíkurflugvelli með sömu tengimöguleikum fyrir farþega yfir Norður-Atlantshafið og í öðru flugi í leiðarkerfi Icelandair á morgnana og síðdegis. Flogið er til George Best City Airport sem er staðsettur aðeins 15 mínútum frá miðbæ borgarinnar og tekur flugið 2:55 klukkustundir.

Belfast er höfuðborg Norður-Írlands og langstærsta borg landsins með um 600 þúsund íbúa. Borgin er miðstöð stjórnsýslu og iðnaðar Norður-Íra og forn mennta- og menningarborg. Mikil saga er í borginni ásamt spennandi viðburðum, mörgum veitingastöðum og verslunum. Þar er magnað Titanic safn, frábærir golfvellir og mikil náttúrufegurð.

„Þetta flug er liður í því að þétta og styrkja leiðakerfi Icelandair. Við sjáum ákveðin tækifæri í því að nýta flugvél eins og Q400 frá Air Iceland Connect til að fara inn á Belfast markaðinn, tengja hann í leiðakerfið og byggja hann upp til framtíðar“, segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair.

Á myndinni sem tekin var í Belfast í morgun eru Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri Air Iceland Connect og Brian Ambrose forstjóri Belfastflugvallar ásamt áhöfn í fyrsta fluginu, Ragnari Smára Ólafssyni flugstjóra, Þórunni Tryggvadóttur flugmanni, Bryndísi Harðardóttur flugfreyju og Gunnari Þorsteinssyni flugþjóni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga