flugfréttir

Von á þriðja tug flugvéla á flugsýninguna um helgina

- F18 orrustuþota væntanleg

1. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 21:20

Frá flugsýningu á Reykjavíkurflugvelli fyrir nokkrum árum

Flugsýningin á Reykjavíkurflugvelli mun fara fram næstkomandi laugardag þann 3. júní en sýningin hefur verið næstum því árlegur viðburður sl. ár þar sem flugvélar af öllum stærðum hafa komið saman og tekið þátt í sýningaratriðum.

Von er á þriðja tug flugvéla á sýninguna sem sumar munu taka þátt í sýningarflugi á meðan aðrar vélar verða til sýnis á jörðu niðri.

Það er Flugmálafélag Íslands sem stendur fyrir sýningunni og er búist við sannkallaðri veislu en brennandi áhugi fyrir flugi er ekki skilyrði fyrir mætingu þar sem fjöldi fólks á öllum aldri hefur sótt fyrri flugsýningarnar á Reykjavíkurflugvelli óháð flugáhuga og náð að skemmta sér konunglega.

Flugsýningin á Reykjavíkurflugvelli hefur verið næstum árlegur viðburður á sumrin

Sýningin mun spanna frá þotum til smæstu flygilda og munu loftför af öllu tagi láta sjá sig, bæði hraðfleygar og hægfleygar.

Meðal flugvéla og loftfara sem von er á að láti sjá sig á flugsýningunni er Boeing 757-200F fraktþota Icelandair Cargo sem mun fara í yfirflug yfir svæðið, Þristurinn „Páll Sveinsson“, þyrla Landhelgisgæslunnar og þá verður senuþjófurinn án efa F-18 orrustuþota frá kanadíska flughernum.

Þá verða nokkrir drónar sem munu verða til sýnis á svæðinu en meðal þeirra er stærsti dróni Íslands og þá má einnig sjá véldreka, paramótor og svifvængi auk fjölda minni flugvéla og þar á meðal Yakkar og Piperar.

Veðurspáin fyrir laugardaginn er hin þokkalegasta en spáð er bjartviðri og allt að 14 stiga hita.

Flugsýningin hefst klukkan 12 á hádegi og stendur rétt fram yfir kl. 15:00.

Hér má nálgast event-síðu um flugsýninguna á Facebook







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga