flugfréttir
Flugskóli Íslands tekur þátt í flugsýningunni á morgun
- Kennarar og nemendur munu svara spurningum um flugnámið
Flugskóli Íslands hvetur alla til að áhugasama um flugnám að heimsækja kennara og nemendur skólans á flugsýningunni
Flugskóli Íslands mun taka þátt í flugsýningunni á Reykjavíkurflugvelli sem fer fram á morgun, 3. júní.
Kennarar og nemendur skólans verða á svæðinu og munu þeir meðal annars svara
spurningum varðandi flugnámið fyrir þá sem hafa áhuga á að gera flugið að framtíðarstarfi
sínu eða leik.
Flugvélar á vegum Flugskóla Íslands verða á svæðinu auk þess sem flugvirkjar munu
fræða gesti um flugvélamótora sem verður á staðnum.
Flugskóli Íslands hefur aðstöðu á Reykjavíkurflugvelli þar sem verkleg kennsla fer fram
en bókleg kennsla bæði í einkaflugmannsnámi og atvinnuflugmannsnáminu fer
fram í Hafnarfirði.
Flugskóli Íslands hvetur alla áhugasama um flugnám að heimsækja kennara
og nemendur skólans á flugsýningunni en hægt er að kynna sér námsleiðir skólans
á flugskoli.is
Uppfært kl. 15:26
Það skal taka fram að ekki verður boðið upp á kynnisflug eins og áður kom fram í fréttinni og leiðréttist þar hér með.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.