flugfréttir

Cyprus Airways flýgur á ný

- Flaug í gær fyrsta áætlunarflugið

2. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:04

Fyrsta áætlunarflug Cyprus Airways fær höfðinglegar móttökur við komuna til Pulkovo-flugvallarins í St. Petersburg í gær

Cyprus Airways hefur hafið sig á flug að nýju en um er að ræða nýtt félag í eigu nýrra fjárfesta en upprunalega Cyprus Airways, sem var ríkisfélag Kýpur, varð gjaldþrota í janúar árið 2015.

Félagið flaug sitt fyrsta áætlunarflug í gær
(1. júní) frá Larnaca til Pulkovo-flugvallarins í Pétursborgar í Rússlandi og þá mun félagið hefja flug til Tel Aviv þann 4. júní.

Cyprus Airways byrjar reksturinn með aðeins eina Airbus A319 þotu en fleiri þotur munu bætast við í flotann á næstu dögum og með tilkomu þeirra mun félagið hefja flug til annarra áfangastaða í lok júní á borð við Rhodes og Heraklion.

Charlie Airlines, nýstofnað flugfélag í eigu rússneska flugfélagsins S7 Airlines og fjárfesta á Kýpur, sér um flugreksturinn fyrir Cyprus Airways en félagið keypti í júlí í fyrra afnot af merki og nafni Cyprus Airways frá ríkisstjórn landsins.

Cyprus Airways mun á næstu mánuðum tilkynna enn fleiri áfangastaði og nýja leiðarkerfisáætlun sem mun ná fram í mars árið 2018.

Fleiri myndir:









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga