flugfréttir
Samband rofnaði við Boeing 737 þotu yfir Ungverjalandi
- Tvær orrustuþotur sendar til móts við vélina
Boeing 737-500 þota Blue Air
Samband rofnaði við rúmenska farþegaþotu um stundarsakir í gær með þeim afleiðingum að tvær orrustuþotur voru ræstar út og sendar til móts við vélina.
Boeing 737-500 þota frá Blue Air var í 34.000 fetum yfir Ungverjalandi á leið sinni frá Constanta í Rúmeníu
til Beauvais-flugvallarins í París en þegar vélin átti að hafa samband við Budapest Center flugumferðarstjórnina
rofnaði sambandið.
Flugherinn í Ungverjalandi sendi tvær Gripen-orrustuþotur af stað sem komu að vélinni 20 mínútum
eftir að sambandið við vélina rofnaði en flugmennirnir höfðu aldrei samband við Budapest Center
eftir að hafa yfirgefið Bucarest Center.
Flugmennirnir náðu að koma aftur á sambandi við flugumferðarstjórn og hélt vélin för sinni áfram
til Parísar og lenti þar 1:50 klukkustund síðar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.