flugfréttir
United mun fljúga lengsta flugið frá Bandaríkjunum
- Hefja flug frá Los Angeles til Singapore í haust
Boeing 787-9 þota United Airlines
United Airines tilkynnti í gær að félagið muni í haust hefja lengsta áætlunarflug sem bandarískt flugfélag hefur flogið frá Bandaríkjunum.
Um er að ræða flug frá Los Angeles til Singapore en United Airlines mun hefja flugið þann 27. október
á þessu ári.
Flugleiðin frá LAX-flugvellinum í Los Angeles til Changi-flugvallarins í Singapore
er 14.100 kílómetra löng og mun flugið taka um 18 klukkustundir.
Singapore Airlines flýgur nú þegar til Los Angeles frá Singapore með Boeing 777-300ER þotum
en ekki er þó um beint flug að ræða.
United Airlines byrjaði að fljúga frá San Francisco til Singapore þann 1. júní í fyrra og er það flug það lengsta
í heimi sem flogið er með Dreamliner-vélunum og einnig lengsta núverandi flug sem flogið er frá
Bandaríkjunum.
United Airlines mun fljúga frá Los Angeles til Singapore með Boeing 787-9 þotum en flugið er um 500 kílómetrum
lengra en flug félagsins til Singapore frá San Francisco.
Flugið mun taka 17 klukkustundir og 55 mínútur en flugtíminn til baka frá Singapore til Los Angeles
er þó öllu styttri eða 15 klukkustundir og 15 mínútur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.