flugfréttir

Stefndi beint á fjall eftir flugtak frá Hong Kong

- Tók beygjuna of snemma

5. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:44

Airbus A320 þota frá Air China í flugtaki í Hong Kong

Flugumferðarstjóri í Hong Kong náði í gær að forða farþegaþotu frá Air China frá mjög hættulegum aðstæðum þar sem vélin stefndi beint á fjall skömmu eftir flugtak.

Vélin, sem er af gerðinni Airbus A320, var í flugtaki á Chek Lap Kok flugvellinum í Hong Kong á leiðinni til Chengdu í Kína þegar flugmennirnir tóku beygjuna of snemma og stefndu beint á fjallið á eyjunni Lantau sem flugvöllurinn liggur við en hefðbundin brottfararleið liggur lengra til vesturs og taka vélarnar beygjuna þegar þær eru komnar lengra frá og í öruggri fjarlægð frá fjallinu.

Flugumferðarstjóri gerði flugmönnum vélarinnar strax viðvart að þeir væru að beygja of snemma og í upptöku af samtali mátti heyra flugumferðarstjórann segja: „Air China flight 428, expedite climb, terrain ahead, terrain alert – expedite climb passing 5,000 feet – expedite“.

Lantau-fjallið við flugvöllinn í Hong Kong

Vélin var komin í 3.400 feta hæð þegar hún tók stefnuna að fjallinu sem er 3.066 fet á hæð en lágmarks öryggishæð yfir eyjunni er 4.300 fet.

Einn flugstjóri, sem er kunnugur flugvellinum í Hong Kong, sagði í viðtali í kínverskum fjölmiðlum, að þetta hefði geta farið mjög illa og tók hann fram að ef flugumferðarstjórinn hefði ekki komið strax auga á mistökin sem flugmennirnir gerðu hefði flugvélin haldið áfram og stefnt beint á Lantau-fjallið.

Flugvélin hélt för sinni áfram og lenti tveimur tímum síðar í Chengdu í Kína.

Brottfararleið Air China vélarinnar að ofan og að neðan má sjá hefðbundna brottfararleið af sömu braut til meginalands Kína.



Launtau-eyjan með Chep Lap Kok flugvöllinn í Hong Kong í baksýn







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga