flugfréttir

Færri en ein A380 framleidd á mánuði á næsta ári

- Framleiðsluhraðinn mun minnka um helming á 2 árum árið 2018

6. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:05

Airbus A380 risaþota í verksmiðjum Airbus í Toulouse

Airbus hefur tilkynnt um enn annan niðurskurðinn í framleiðslu á risaþotunni A380 en allt stefnir í að Airbus muni framleiða færri en eina risaþotu á mánuði á næsta ári.

„Sennilega erum við að fara undir „Rate 1“ (færri en eitt eintak á mánuði)“, segir Didier Evrard hjá Airbus er flugvélaframleiðandinn hefur átt í erfiðleikum með að finna fleiri kaupendur að vélinni á sama tíma og sum flugfélög, sem hafa pantað Airbus A380, hafa tekið við færri vélum en þau pöntuðu.

Árið 2016 smíðaði Airbus 26 eintök af risaþotunni en gerð er ráð fyrir að 15 eintök verði framleidd á þessu ári en allt lítur út fyrir að aðeins verði framleiddar 12 þotur á næsta ári.

Risaþotur fyrir Emirates á verksmiðjusvæði Airbus

Sumir sérfræðingar í fluginu hafa spurt sig þeirra spurningar hvort að endalok framleiðslunnar á risaþotunni sé að nálgast eftir frekar stuttan framleiðslutíma en John Leahy, sölustjóri Airbus, segir að risaþotuna sé komin til að vera og verði framleidd næstu 30 árin að minnsta kosti.

Airbus vinnur nú þegar að ýmsum breytingum á Airbus A380 en verið er að endurnýja þær innréttingar sem flugfélögum standa til boða og þá er verið að þróa nýja vænglinga fyrir vélarnar sem gæti gert Airbus A380 allt að 4% sparneytnari.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga