flugfréttir

„Boeing 737 MAX 10 mun heppnast álíka vel og 767-400“

- Sölustjóri Airbus segir að Boeing hafi tapað baráttunni í meðalstórum þotum

7. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:29

John Leahy, sölustjóri Airbus

Sölustjóri Airbus, John Leahy, telur að enn lengri útgáfa af Boeing 737 MAX, sem mun koma til með að kallast Boeing 737 MAX 10, verði álíka „velheppnuð“ og Boeing 767-400 og Boeing 757-300 vélarnar voru á sínum tíma.

Þetta sagði Leahy í viðtali á ársfundi Alþjóðasamtaka flugfélaganna (IATA) sem lauk í Cancun í Mexíkó í gær.

„Ég von að þetta verði að veruleika hjá þeim. Þetta verður ágætis flugvél“, segir Leahy sem tók fram að vélin muni samt sem áður ekki komast með tærnar þar sem Airbus A321neo hefur hælana.

Boeing tilkynnti í mars í vor að til stæði að framleiða enn lengri útgáfu af Boeing 737 MAX sem mun koma til með að taka allt að 230 farþega og er von á því að 737 MAX 10 verði formlega kynnt til leiks á flugsýningunni í París sem hefst í þessum mánuði.

John Leahy

Sérfræðingar í fluginu segja að fá flugfélög hafa sýnt Boeing 737 MAX 10 áhuga þótt þau séu nokkur og þá efast flugvélaleigur um kosti hennar.

Leahy líkir Boeing 737 MAX 10 við lengingar á Boeing 767 vélinni þegar 767-400ER kom á markaðinn árið 2000 en aðeins voru 37 eintök af þeirri vél smíðið af þeim 1.098 Boeing 767 þotum sem hafa verið smíðaðar frá upphafi.

„Þetta voru ágætis lengingar sem gerðar voru á vél sem misstu bæði flugþol og eiginleika sína og markaðurinn leit ekki við þessum vélum“, segir Leahy.

Leahy hélt áfram og segir að aðstæðurnar séu einfaldlega þær að Boeing er í krísu að keppa við Airbus á markaðnum er kemur að meðalstórum farþegaþotum í skugga velgengninnar sem Airbus A321 þotan hefur notið.

„Þeir áttu markaðinn í mörg ár þegar kom að meðalstórum farþegaþotum með einum gangi en nú hafa þeir tapað baráttunni. Þeir hafa ekki Boeing 757 lengur og þeim hefur ekki tekist að koma með aðra vél í staðinn fyrir hana, Boeing 767 hefur horfið af sjónarsviðinu og við ráðum núna yfir markaðnum“, segir Leahy.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga