flugfréttir

Kína ætlar að hækka starfslokaaldur flugmanna

- Vonast til að draga með því úr flugmannaskorti

7. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 15:06

Starfslokaaldur atvinnuflugmanna í dag í Kína er 60 ár en hann verður hækkaður á næstunni

Flugmálayfirvöld í Kína ætla að hækka starfslokaaldur atvinnuflugmanna þar í landi í þeim tilgangi að koma til móts við skort á flugmönnum en starfslokaaldur er ein ástæðan fyrir flugmannaskorti í mörgum löndum.

Í Kína mega atvinnuflugmenn fljúga þar til þeir hafa náð 60 ára aldri en ekki er búið að ákveða hversu mikið aldurstakmarkið verður hækkað en talið er að það verði hækkað um 2 til 3 ár.

Liu Shen, yfirmaður kínverskra flugmálayfirvalda, segir að þar sem flugfélög í Kína hafi að undanförnu pantað mikið magn af þotum sem væntanlegar eru á næstu árum, þá skapi það alvarlegan skort á flugmönnum í landinu sem býr yfir fáum flugskólum sem útskrifa ekki eins marga nýja flugmenn og flugfélögunum vantar.

Flugfélög í Kína hafa sl. ár ráðið til sín erlenda flugmenn en sú lausn er farin að vera erfið þar sem sambærilegur skortur á flugmönnum hefur gert vart við sig í flestum öðrum löndum.

Aðeins 12 flugskólar eru í Kína

Kínversk flugfélög þurfa á 3.000 nýjum flugmönnum á að halda á hverju ári en 12 flugskólar er að finna í Kína sem aðeins ná að útskrifa frá 1.250 til 1.300 nýja flugmenn árlega sem er 1/3 af þeim hópi flugmanna sem félögunum vantar.

Kínversk flugfélög hafa í auknu mæli sent svokallaða „cadet-flugnema“ erlendis í flugnám, til Evrópu, Bandaríkjanna eða til Ástralíu þar sem ekki er pláss fyrir þá í kínverskum flugskólum en þeir nemendur þurfa fyrst að gangast undir 80 klukkustunda námskeið í ensku áður en þeir fara á námskeið.

Kína þarf á 3.000 nýjum flugmönnum á að halda á hverju ári næstu árin

Kínversk flugfélög hafa ráðið reynslumikla kapteina frá erlendum flugfélögum með því að bjóða þeim allt að 2.5 milljónir króna í laun á mánuði ásamt fríðindum og bónusgreiðslum en upphæðin fer eftir reynslu og tegundaráritun sem þeir hafa.

Ráða flesta erlenda flugmenn frá Suður-Kóreu

Flestir erlendir atvinnuflugmenn í Kína koma frá Suður-Kóreu þar sem löndin eru nágrannalönd og menning Kínverja og Suður-Kóreubúa er svipuð en það hefur orðið til þess að Asiana Airlines og Korean Air hafa misst marga flugmenn og hafa þau félög þurft að leita eftir erlendum flugmönnum einnig til að fylla í þeirra skarð.

Þrátt fyrir þetta ástand þá segir yfirmaður flugmálayfirvalda í Kína að kínversk flugfélög hafi aldrei þurft að fella niður flug vegna skorts á flugmönnum en kostnaðurinn við að aflýsa flugi vegna flugmannaskorts er álíka dýr og atvinnuflugmannsnám fyrir einn einstakling.

Japönsk flugfélög hækkuðu starfslokaaldur atvinnuflugmanna í Japan frá 62 árum upp í 64 ár árið 2004 en árið 2015 var hann hækkaður upp í 67 ár.

Starfslokaaldur hjá Singapore Airlines er 62 ár með möguleika á framlengingu til 64 ára aldurs sem fer þá eftir heilsu hvers og eins flugmanns.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga