flugfréttir
32 flugfélag hafa sýnt Alitalia áhuga
- Fæst hafa áhuga á að taka yfir allan rekstur félagsins
Rekstur Alitalia hefur gengið mjög erfiðlega að undanförnu
Ryanair og Lufthansa eru meðal þeirra 32 flugfélag sem hafa sýnt áhuga á Alitalia að hluta til eða í heild sinni en stjórn flugfélagsins ítalska fer nú yfir þau tilboð sem hafa borist.
Tilboð félaganna eru þau misjöfn en til að mynda hefur Ryanair eingöngu áhuga
á að taka yfir langflugsflota Alitalia og stofna nýtt félag sem mun koma farþegum
Ryanair áfram til fjarlægra áfangastaða í gegnum núverandi leiðarkerfi lágfargjaldafélagsins.
Lufthansa hefur einnig ekki áhuga á að taka yfir allan rekstur félagsins en flugfélagið
þýska hefur áhuga á flugflota Alitalia.
Stjórn Alitalia mun fara gaumgæfilega yfir tilboðin frá 15. til 20. júní og verða
tilboð flugfélaganna að uppfylla vissar kröfur áður en ákvörðun verður tekin.
Meðal annarra flugfélaga sem hafa sýnt Alitalia áhuga eru British Airways, Air France,
Turkish Airlines, Delta Air Lines, Hainan Airlines og Air China.
Stjórn félagsins segir að þrennt komi til greina í stöðunni sem er annaðhvort
að endurreisa rekstur Alitalia, selja félagið eins og það leggur sig eða selja
flugflotann, fasteignir og aðrar eigur þess.
Stjórn Alitalia auk hluthafa ákvað í maí að sækja um gjaldþrotameðferð fyrir félagið í kjölfar þess að meirihluti starfsmanna kusu gegn nýrri rekstraráætlun sem átti að koma félaginu til bjargar með hundrað
milljarða króna fé sem til stóð að setja inn í reksturinn.
Rekstur Alitalia hefur gengið mjög erfiðlega að undanförnu en evrópsk lágfargjaldafélög á borð við easyJet og Ryanair hafa tekið undir sig 47 prósent af farþegaflugi til og frá Ítalíu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.