flugfréttir

ESB bregst við aukinni samkeppni frá Miðausturlöndum

- Kynna lög til að setja skorður á erlend flugfélög

9. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 15:17

Farþegaþotur frá Emirates og Qatar Airways

Evrópusambandið hefur kynnt nýjar reglugerðir sem er ætlað að sporna við óheiðarlegri samkeppni meðal erlendra flugfélaga sem fljúga til Evrópu og hafa gert evrópskum flugfélögum erfitt fyrir.

Evrópsk flugfélög á borð við Lufthansa, Air France og KLM hafa kvartað undan ágengni frá erlendum flugfélögum og þá einna helst þeirra sem fljúga til Evrópu frá Miðausturlöndum og þá einna helst Etihad Airways, Emirates og Qatar Airways.

Nýju lögin munu auðvelda ríkisstjórnum og flugfélögum landa Evrópusambandins að koma á framfæri ábendingum og kvörtunum ef þau verða var við undarlega viðskiptahætti sem flokkast undir ólögmæta samkeppni og verða þau mál tekin fyrir.

Ef flugfélög, sem koma frá löndum sem tilheyra ekki Evrópu, eru staðin að því að hafa brotið samkeppnislög þá verður gripið til aðgerða og þau sektuð eða svipt réttindum sínum er snýr að flugrekstri til Evrópu.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og aðildarlönd ESB þurfa þó fyrst að samþykkja reglugerðina áður en þau verða að lögum og verða drög að þeim borin undir viðkomandi aðila og stjórnvöld á næstunni.

Þýskaland og Frakkland hafa verið mjög hlynnt reglugerðum til að sporna við fjölda flugferða til Evrópu frá flugfélögum í Miðausturlöndum en sum Evrópulönd hafa verið á móti slíkum aðgerðum af ótta við að það skaði samstarf við viðkomandi lönd eða hafi áhrif á loftferðasamninga.

Stærstu flugfélög Evrópu og þar á meðal Lufthansa, Air France og KLM, skrifuðu í vor bréf til Evrópusambandsins en þar kom meðal annars fram að félögin hafi upp á síðkastið neyðst til þess að hætta að fljúga til fjölda áfangastaða í Asíu þar sem flugfélög á borð við Emirates eru farin að gera samkeppnina óbærilega með fjölda flugferða til Evrópu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga