flugfréttir
47 atvinnuflugnemar hafa útskrifast hjá Keili á árinu
- 18 nýir atvinnuflugmenn útskrifuðust í gær við hátílega athöfn
Hópurinn sem útskrifaðist í gær úr atvinnuflugmannsnáminu hjá Flugakademíu Keilis
Átján atvinnuflugnemar útskrifuðust frá Flugakademíu Keilis í gær (9. júní) við hátíðlega atöfn sem fram fór á Ásbrú.
Með þessu hafa 47 atvinnuflugmenn útskrifast frá skólanum það sem af
er ári og hefur Flugakademía Keilis aldrei útskrifað eins marga atvinnuflugmenn á sama tímabili.
Mikil aukning hefur verið í flugtengd nám hjá Keili að undanförnu en
í maí hófust tveir atvinnuflugmannsbekkir í samhæfðu atvinnuflugmannsnámi og
þá mun mikill fjöldi hefja nám í ágúst.
Þá útskrifuðust fimm flugvirkjar og hafa því samtals 24 flugvirkjar útskrifast á árinu og 46 samtals á tveimur árum.
Rúnar Árnason, forstöðumaður Flugakademíunnar, flutti ávarp. Dúx var Sigurbergur Ingi Jóhannsson með 9,44 í meðaleinkunn. Kolbeinn fékk gjafabréf frá WOWair og bók frá Icelandair. Ræðu útskriftarnema flutti Pontus Willby.
175 hafa lokið atvinnuflugmannsnámi frá upphafi
Samtals hafa 175 einstaklingar lokið atvinnuflugmannsnámi frá upphafi og hefur verið aukin ásókn í atvinnuflugnám við Keili á undanförnum árum.
Það sem af er ársins hafa þrír atvinnuflugmannsbekkir farið af stað við skólann og hefst fjórði bekkurinn í ágúst
og er því ljóst að aldrei munu fleiri hafa stundað atvinnuflugmannsnám við Keili en á þessu ári.
Þá hefur Flugakademían á undanförnum misserum bætt við flugvélakostinn og hefur nú yfir að ráða tíu fullkomnar
kennsluvélar frá Diamond flugvélaframleiðandanum, þær fullkomnustu og nýstárlegustu á landinu.
Að auki hefur skólinn yfir að ráða fullkominn hreyfanlegan flughermi frá Redbird og er von á öðrum flughermi í haust.
Sigurbergur Ingi Jóhannsson útskrifaðist með 9,44 í meðaleinkunn
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.