flugfréttir

Southwest komið með 737 eintök af Boeing 737

11. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:37

Boeing 737 þota númer 737 var afhent til Southwest Airlines sl. fimmtudag

Southwest Airlines er í dag komið með 737 eintök af Boeing 737 þotunni í flotann sinn en sérstök athöfn fór fram í tilefni þess á dögunum í afhendingarmiðstöðinni í Boeing Field.

Sjöhundruð-þrítugasta-og-sjöunda Boeing 737 þota Southwest er af gerðinni Boeing 737-800 en félagið, sem er eitt stærsta lágfargjaldafélag Bandaríkjanna, fékk sína fyrstu þotu afhenta frá Boeing árið 1971 en sú vél var af gerðinni Boeing 737-200.

Bill Rogers og Peggy Hain, starfsmenn í flugrekstardeild Southwest Airlines, sáu um að gera úttekt á þotunni við afhendingu en Bill hefur tekið við 545 eintökum af Boeing-þotum fyrir Southwest frá árinu 1991 á meðan Peggy hefur „sótt“ næstum 100 Boeing 737 þotur fyrir Southwest Airlines.

Verkahringur þeirra beggja er að sjá til þess að vélin uppfylli allar kröfur Southwest Airlines áður en þeim er flogið til höfuðstöðva félagsins.

Southwest Airlines á von á því að taka á móti 271 Boeing 737 þotu til viðbótar á næstu árum en þær vélar eru af gerðinni Boeing 737-700, 737-700 og Boeing 737 MAX 7 og 737 MAX 8.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga