flugfréttir

Flugstjóri lét farþega kjósa hvort þeir vildu fljúga með bilaðri vél

- Flugstjóri hjá easyJet sagður hafa látið farþega rétta upp hönd

11. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 22:57

Farþegar ganga frá borði á flugvellinum í Malaga í gær

Farþegar, sem áttu að fljúga með flugvél frá easyJet frá Malaga til Englands, voru furðu lostnir er flugstjórinn ávarpaði farþega í farþegarýminu og bað þá um að kjósa um hvort þeir treystu sér að fljúga með vélinni heim eða ekki.

Flugstjórinn á að hafa sagt við farþegana að það væru helmingslíkur („50/50“) á því að annar hreyfillinn myndi bila á leiðinni og bað hann þá farþega, sem treystu sér til þess að fara með vélinni, að rétta upp hönd.

Ekki þurfti að spyrja að leikslokum og yfirgáfu flest allir farþegar vélina út um stigabíl skömmu fyrir brottför til Bristol en vélinni hafði þegar seinkað um tvo sólarhringa vegna bilunar í hreyfli.

„Á þessum tímapunkti var komin mikill óróleiki á alla, farþegar hrópuðu að flugstjóranum og æstu sig. Það voru um 12 farþegar sem vildu fljúga með vélinni en allir aðrir vildu fara frá borði strax“, segir einn farþegi sem átti bókað flug til Bristol með vélinni.

EasyJet segir að farþegar hafi misskilið flugstjórann

Flugstjórinn viðurkenndi fyrir farþegum að hann hefði aldrei á 37 ára flugferli sínum áður gripið til þess ráðs að láta farþega „kjósa“ um hvort þeir vildu fara og eða láta á reyna.

EasyJet segir að farþegarnir misskildu flugstjórann sem var aðeins að spyrja farþega hvort þeir vildu fara frá borði á meðan viðgerð á hreyflinum fór fram.

„Flugstjórinn ætlaði að gera tilraun með að starta örðum hreyflinum og síðan hinum og hann vildi bjóða farþegum þann valkost að vera í vélinni á meðan eða fara frá borði þar sem flugvirkjar voru að skoða vélina“, segir í tilkynningu frá easyJet.

„Á engum tímapunkti ætlaði flugstjórinn sér að fljúga flugvél í óvissuástandi þar sem óljóst væri með hvort að hreyflarnir væru að virka“.

Upphaflega áttu farþegarnir að fara með vélinni sl. fimmtudag en atvikið átti sér stað sl. laugardag (10. júní) en málið ð endaði með því að önnur vél var send til Malaga til að koma farþegum á leiðarenda.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga