flugfréttir

Qatar Airways biður ICAO um að grípa til aðgerða

- Segja að verið sé að brjóta Chicago-sáttmálann

13. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 10:29

Flugfloti Qatar Airways á flugvellinum í Doha

Qatar Airways hefur beðið Sameinuðu þjóðirnar um að grípa inn í deilurnar sem hafa komið upp á milli Qatar og nágrannalanda þess sem hafa lokað fyrir aðgang félagsins að flugstjórnarsvæðum sínum vegna pólitískra deilna.

Qatar Airways hefur sent bréf til Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO), sem heyrir undir Sameinuðu þjóðirnar, þar sem félagið skorar á samtökin til að gera tilraun til að leysa vandann sem hefur myndast eftir að Sádí-Arabía, Bahrain, Sameinuðu arabísku furstadæmin og Egyptaland lokuðu öll lofthelgi sinni fyrir flugumferð á vegum Qatar Airways.

Boeing 777 þota Qatar Airways í aðflugi að flugvellinum í
Los Angeles

Aðili, sem kunnugur er málinu, segir að Qatar Airways segi meðal annars í bréfinu til ICAO að með hegðun og framkomu nágrannalanda Qatar sé verið að brjóta ákvæði í Chicago-sáttmálann sem var undirritaður árið 1944 þar sem fram kemur að öll aðildarlönd eigi að tryggja óhefta og greiða flugumferð gegnum sína lofthelgi.

Vika er síðan að Miðausturlöndin fjögur ákváðu að loka á öll viðskiptatengsl við Qatar þar sem þau töldu grunsemdir um að landið væri að styðja við hryðjuverk.

Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO) mun halda reglulegan fund í þessari viku en ekki er vitað hvort að samtökin muni taka málið fyrir á þeim fundi.

„Ég geri ekki ráð fyrir að málið muni leysast á einni nóttu“, segir einn heimildarmaður innan ICAO sem á von á því að samtökin muni taka málið fyrir á næstu dögum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga