flugfréttir
Ryanair íhugar að panta Boeing 737 MAX 10
Ryanair hefur áhuga á Boeing 737 MAX 10 þotunum
Ryanair hefur áhuga á að kaupa enn lengri 737 MAX þotu og er félagið í viðræðum við Boeing vegna Boeing 737 MAX 10.
Óljóst er hvort að Ryanair muni tilkynna um pöntun í Boeing 737 MAX 10 á flugsýningunni
í París sem hefst næstkomandi mánudag (19. júní) en gert er ráð fyrir að Boeing muni
þá kynna vélina formlega til leiks með fyrstu pöntunum sem eru væntanlegar frá Lion Air.
Boeing 737 MAX 10 hefur verið borin undir viðskiptavini á borð við United Airlines, SpiceJet,
Lion Air, Jet Airways og Copa Airlines.
United er að skoða möguleika á því að breyta pöntun sinni í 737 MAX vélarnar
yfir í 737 MAX 10 en félagið er einnig að íhuga að panta Airbus A321neo þotur.
Ryanair hefur nú þegar gert pöntun í 100 eintök af Boeing 737 MAX 200 sem er sérstök
lágfargjaldarútgáfa sem tekur 200 farþega en Boeing 737 MAX 10 mun sennilega koma
til með að taka yfir 230 farþega.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.