flugfréttir

Eftirspurn eftir breiðþotum dvínar töluvert

- Algengara að flugfélög hætti við eða fresti afhendingum

14. júní 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:46

Nýjar breiðþotur á athafnasvæði Boeing í Everett

Eftirspurnin eftir nýjum breiðþotum bæði frá Airbus og Boeing hefur dvínað töluvert að sögn Scott Hamilton, markaðsfræðings í flugmálum hjá fyrirtækinu Leeham LLC í Seattle.

Gert er ráð fyrir að pantanir í breiðþotur verði mun færri á flugsýningunni í París sem hefst eftir helgi og segir Hamilton að Airbus A380 gæti sungið svanasöng sinn í ár þar sem pantanir í vélina hafa nánast „þornað upp“ að undanförnu.

Hamilton telur að framtíð risaþotunnar sé í höndum Emirates sem hefur verið orðað við aðra pöntun í fleiri Airbus A380 en hann telur að Emirates muni ekki leggja inn pöntun í nýjar þotur á Paris Air Show.

Dregið hefur úr pöntunum á breiðþotum á borð við Airbus A330, A350 og bæði Boeing 777 og 777X frá því sem áður var og þá er orðið algengara að flugfélög séu að hætta við pantanir í breiðþotur eða fresta afhendingum.

David Strauss, sérfræðingur hjá UBS, segir að eftirspurn og framleiðsla á breiðþotum bæði hjá Boeing og Airbus sé 25% undir þeim mörkum sem menn sáu fyrir sér fyrir að yrði fyrir nokkrum árum síðan.

Skýrsla frá Fitch Ratings er á sömu nótum þar sem séð er fram á að færri pantanir verði gerðar í nýjar þotur á þessu ári þrátt fyrir að afhendingum muni fjölga áfram í takt við aukna flugumferð í heiminum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga