flugfréttir
MRJ90 þotan á Íslandi
- Lenti í Keflavík á leið sinni á flugsýninguna í París
Mitsubishi Regional Jet (MRJ) þotan á Keflavíkurflugvelli í kvöld
Þegar stórar flugsýningar nálgast þá senda flugvélaframleiðendur nýjustu afurð sína á slíkar sýningar og stórar sem smáar vélar eru þá sendar heimshorna á milli.
Hin japanska farþegaþota Mitsubishi Regional Jet (MRJ) lenti á Keflavíkurflugvelli nú undir kvöld en vélin er hingað
komin frá Bandaríkjunum á leið sinni til Parísar en flugsýningin Paris Air Show hefst næstkomandi mánudag.
Þrátt fyrir að MRJ sé japönsk flugvél þá hafa flestar flugprófanirnar farið fram í Moses Lake í Washington-fylki en vélin
lagði af stað þaðan í gær.
Vélin hafði viðkomu í Winnipeg og í Goose Bay á Labrador á leiðinni til landsins og lenti vélin á Keflavíkurflugvelli
klukkan 18:20 í kvöld eftir 3:35 klukkustunda flug frá Kanada.
Vélin sem er hingað komin er þriðja MRJ-þotan sem smíðuð hefur verið frá upphafi en alls hafa verið smíðaðar
fjórar vélar sem eru allar tilraunaflugvélar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.